Laus eru til umsóknar íþróttakennarastaða við Reykjahlíðarskóla í Mývatnssveit frá 1. ágúst 2020.
Um er að ræða u.þ.b. 50% staða í íþróttum en á móti 50% staða í öðrum greinum, eftir samkomulagi.
Hæfniskröfur:
Í Reykjahlíðarskóla eru 43 nemendur í 1.-10. bekk og er samkennsla árganga.
Í skólanum er góður starfsandi þar sem leitast er við að haga skólastarfinu í sem fyllstu samræmi við þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska hvers og eins.
Skólinn er að innleiða Heilsueflandi grunnskóla, Jákvæðan aga og flaggar Grænfánanum fyrir umhverfisstefnu.
Í Mývatnssveit búa um 500 manns. Í metnaðarfullri mannauðsstefnu sveitarfélagsins kemur m.a. fram að boðið er upp á flutningsstyrk, heilsustyrk, launað frí fyrir barnshafandi konur síðasta mánuð meðgöngu, starfsaldurstengdar greiðslur o.fl. fyrir starfsfólk. Við erum fjölskylduvænt samfélag þar sem er öflugt leikskóla- og grunnskólastarf, boðið er upp á ókeypis skólamáltíðir fyrir börn og ókeypis frístund. Við erum heilsueflandi samfélag.
Upplýsingar um Reykjahlíðarskóla eru á: http://www.skutustadahreppur.is/skolinn
Umsóknarfrestur er til 23. maí 2020.
Frekari upplýsingar gefur Sólveig Jónsdóttir skólastjóri.
Tölvupóstur: reykjahlidarskoli@reykjahlidarskoli.is