Matráður óskast við Reykjahlíðarskóla og Leikskólann Yl í Mývatnssveit í síðasta lagi 1. maí 2018. Um er að ræða 100% starf. Matráður starfar eftir leiðbeiningum landlæknisembættisins um mataræði í heilsueflandi grunnskólum og leikskólum.
Launakjör fara eftir kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags.
Bæði karlar og konur eru hvött til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Sólveig Jónsdóttir skólastjóri í síma 464-4375 og 849-7749.
Vinsamlegast skilið inn umsóknum í síðasta lagi 3. apríl á skrifstofu Skútustaðahrepps eða á netfangið solveig@reykjahlidarskoli.is
Skólastjóri Reykjahlíðarskóla